Innlent

Ökumaður slasaðist alvarlega

Ökumaður jepplings hálsbrotnaði þegar hann missti stjórn á bílnum og valt ofan í gil við Skaftatunguveg skammt frá bænum Gröf í gær.

Bíllinn féll um sex metra ofan í gilið. Ökumaðurinn, erlendur ferðamaður á fimmtugsaldri, var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Að sögn lögreglu slapp farþegi í bílnum ómeiddur. Báðir voru í beltum. Lögregla telur að vegfarendur sem urðu vitni að slysinu og hlúðu að ökumanninum hafa bjargað miklu. - bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×