Pálmar: Vítið mitt var það öruggasta sem ég hef séð Henry Birgir Gunnarsson á Húsavík skrifar 17. október 2010 19:10 Pálmar býr sig hér undir að taka vítaskotið í dag. Það fór í stöngina og inn. Mynd/640.is
Leikur Völsungs og FH í Eimskipsbikarnum i dag var sérstakur fyrir Pálmar Pétursson, markvörð FH. Hann er uppalinn Húsvíkingur og spilaði með Völsungi síðast er liðið spilaði alvöru leik fyrir tíu árum síðan. Pálmar fékk afar hlýjar móttökur hjá sveitungum sínum fyrir leikinn en hann gaf vinum sínum á Húsavík engin grið. Varði eins og berserkur þær 30 mínútur sem hann spilaði. Alls 13 skot. "Þetta var í einu orði sagt frábært. Flott umgjörð hjá Völsungi á leiknum og það náðist að gera mjög skemmtilegan dag úr þessum bikarleik. Það er gaman að fá að leggja sitt af mörkum til þess að byggja upp handboltann hérna heima. Völsungarnir leyndu síðan á sér og skoruðu 23 mörk. Það er meira en ákveðin úrvalsdeildarlið," sagði Pálmar brosmildur en Haukar náðu einmitt ekki að skora svona mikið gegn FH um daginn. Pálmar varði ekki bara vel því hann skoraði einnig mark í leiknum. Kom inn af bekknum til þess að taka vítakast. Það skot var af dýrari gerðinni og fór í stöngina og inn. "Það er langt síðan ég hef verið eins stressaður og þegar ég tók vítið. Þetta var samt öruggasta víti sem ég hef séð. Menn verja hann ekki þarna. Það verður erfitt fyrir Stjána (Kristján Arason, þjálfara FH) að taka mig af punktinum eftir þetta," sagði Pálmar léttur sem fyrr.
Olís-deild karla Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Sjá meira