Innlent

Alvarlega slösuð eftir árekstur

Ríflega sextug kona var flutt með alvarlega innvortis áverka á gjörgæsludeild Landspítalans seinni partinn í gær eftir harðan árekstur tveggja jeppa við afleggjarann af Suðurlandsvegi inn að Dyrhólaey.

Þrír voru í jeppa sem ók inn á Suðurlandsveg í veg fyrir annan jeppa sem ók í austurátt, og inn í hlið hins. Konan sem ók fyrrnefnda bílnum slasaðist mest, en einn úr hinum bílnum var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka. Bílarnir eyðilögðust báðir.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gekkst konan undir aðgerð í gærkvöldi en ekki fengust upplýsingar um líðan hennar frá spítalanum. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×