Fótbolti

Ferguson: Beckham á að spila á kantinum en ekki inn á miðjunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Beckham og félagar hans á miðjunni hjá AC Milan,  Massimo Ambrosini og Andrea Pirlo.
David Beckham og félagar hans á miðjunni hjá AC Milan, Massimo Ambrosini og Andrea Pirlo. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir það hafa verið mistök hjá Leonardo, þjálfara AC Milan, að nota David Beckham inn á miðjunni í 2-3 tapi AC Milan á móti United í Meistaradeildinni í vikunni.

David Beckham sóttist alltaf eftir því að spila inn á miðri miðjunni hjá Manchester United en fékk það sjaldnast. Ein af fáum undantekningum er úrslitaleikur Meistaradeildarinnar 1999 en í þeim leik voru bæði Paul Scholes og Roy Keane í leikbanni.

Sir Alex Ferguson var sammála útvarpsmanninum Giorgio Chinaglia um að David Beckham geti ekki spilað inn á miðjunni heldur aðeins út á vængnum þegar Ferguson mætti í viðtal á bandarísku útvarpsstöðinni Sirius.

„Það er rétt hjá þér. Það kom mér á óvart að þeir notuðu David inn á miðri miðjunni. Að mínu mati áttu þeir að nota hann út á vængnum. Þeir missa þarna af því sem hann gerir best sem er að koma með góðar fyrirgjafir," sagði Ferguson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×