Innlent

Geir var skíthræddur við Davíð

Geir tók við af Davíð sem formaður Sjálfstæðiflokksins á landsfundi flokksins 2005. Mynd/Stefán Karlsson.
Geir tók við af Davíð sem formaður Sjálfstæðiflokksins á landsfundi flokksins 2005. Mynd/Stefán Karlsson.
„Þú getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið þarna upp og sagt þetta við Davíð," sagði Geir H. Haarde við Össur Skarphéðinsson eftir að sá síðarnefndi hafði þvertekið fyrir að Davíð Oddsson færi fyrir sérstakri neyðarstjórn vegna þeirra aðgerða sem grípa þyrfti til í október 2008 líkt og Geir lagði til.

Við skýrslutöku segist Össur hafa beðið strax um fundarhlé þar sem hann hafi ekki getað fallist á tillöguna. Geir hafi verið mjög stressaður.

„Ég sagði að það kæmi ekki til greina, hann gæti beðið okkur um að ganga héðan út og rekið okkur úr ríkisstjórninni, en [...] ég gæti ekki fallist á þetta, ég hefði ekki heimild til þess."

Þá sagði Össur:

„Ég hefði lýst því yfir í ríkisstjórninni að þessi maður væri ekki hæfur og hann myndi ekki geta byggt það samstarf við ríkisstjórn eins og hefur komið fram, hann væri í reynd að leggja til að hún legði niður störf og önnur stjórn tæki við. Þetta þýddi það að það ætti auðvitað að vera fullkominn trúnaðarbrestur á milli hans líka og Davíðs, og sagði honum þetta. Og frá því er skemmst að segja að hann nánast skalf og nötraði. Hann sagði: „Þú getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið þarna upp og sagt þetta við Davíð." „Það er það sem þú verður að gera", sagði ég. Þetta var töluvert langt fundarhlé og svo fór hann upp og skömmu síðar heyrðum við þung skref eftir ganginum, og Davíð Oddsson gekk út og kom ekki aftur."


Tengdar fréttir

Geir vildi að Davíð færi fyrir neyðarstjórn

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vildi að Davíð Oddsson færi fyrir sérstakri neyðarstjórn vegna þeirra aðgerða sem grípa þyrfti til í október 2008. Þessu hafnaði Össur Skarphéðinsson og þá bað Geir Össur um að gera sér þetta ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×