Körfubolti

Arenas gerði sér upp meiðsli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Byssubrandurinn hjá Washington Wizards, Gilbert Arenas, heldur áfram að gera það gott en hann hefur nú verið sektaður af félaginu fyrir að gera sér upp meiðsli.

Arenas átti að spila fyrsta æfingaleik Wizards en ákvað að gefa ekki kost á sér vegna meiðsla. Síðar kom í ljós að hann var alls ekkert meiddur.

Leikurinn hefði verið fyrsti heimaleikur Arenas frá því að hann var dæmdur í 50 leikja bann fyrir að mæta með hvorki fleiri né færri en fjórar byssur í búningsklefa liðsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×