Lífið

Hjónabandið eins og líkamsrækt

Jeff Bridges segir hjónaband vera mikla vinnu. 
Nordicphotos/Getty
Jeff Bridges segir hjónaband vera mikla vinnu. Nordicphotos/Getty

Óskarsverðlaunahafinn Jeff Bridges hefur verið giftur eiginkonu sinni, Susan Geston, í ein þrjátíu og þrjú ár og líkir hjónalífinu við líkamsrækt.

„Við erum ástfangin og við ræktum ástina. Við höfum verið gift í 33 ár og þá koma dagar þar sem maður hugsar: „Ég er búinn að fá nóg, þetta er of erfitt." En ef þú reynir að vinna úr þessum tilfinningum, skilja sjónarmið hins aðilans og styðja við bakið á honum, þá dafnar ástin.

Ætli þetta sé ekki eins og að stunda líkamsrækt. Þegar maður stundar hana reglulega þá verður það sífellt auðveldara og þú ferð að njóta hennar," sagði hinn viðkunnanlegi leikari.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.