Körfubolti

Cleveland ætlar að láta Miami blæða

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Dramanu í kringum vistaskipti LeBron James frá Cleveland til Miami er ekki lokið. Samkvæmt nýjustu fréttum er Cleveland að rannsaka hvort Miami hafi brotið reglur um félagaskipti.

Dan Gilbert, eigandi Cleveland, hefur þegar eytt milljónum í lögfræðikostnað vegna málsins en Gilbert var allt annað en sáttur þegar James ákvað að fara til Miami.

Gilbert grunar að forráðamenn Miami hafi verið byrjaðir að krukka í James áður en þeir máttu það. Það ætlar hann sér að sanna. Takist honum það mun Miami væntanlega fá háa sekt.

Þetta mál kyndir enn frekar undir bálið fyrir "heimkomu" James en hann leikur sinn fyrsta leik með Miami í Cleveland á fimmtudag.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×