Lífið

Úr fótbolta í flugfreyjuna

hættur í boltanum Eggert hefur skipt út takkaskónum fyrir flugfreyjuna og líkar vel. fréttablaðið/pjetur
hættur í boltanum Eggert hefur skipt út takkaskónum fyrir flugfreyjuna og líkar vel. fréttablaðið/pjetur

Eggert Stefánsson, fyrrverandi leikmaður Fram í fótbolta, hefur algjörlega söðlað um starfsvettvang og er farinn að skenkja kaffi í háloftunum. Eggert er kominn úr mikilli íþróttafjölskyldu en bræður hans eru Ólafur Stefánsson handboltakappi og Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður.

Hann er lærður flugmaður en mikill samdráttur er í þeim geira eins og annars staðar. „Ég kláraði flugmanninn í fyrra og þegar ég sá að Iceland Express auglýsti eftir flugliðum í byrjun árs stökk ég á það,“ segir Eggert. „Mig langaði að koma mér inn í fluggeirann og sé alls ekki eftir því. Flugfreyjustarfið hefur komið mér skemmtilega á óvart.“

Eggert stefnir á flugmanninn í framtíðinni, hér heima eða úti. Til að vera flugliði þarf maður að kunna eitt tungumál fyrir utan íslensku og ensku en Eggert er uppalinn að hluta í Svíþjóð og getur bjargað sér á þýsku. „Fyrsta flugið mitt var einmitt til Þýskalands en ég þorði ekki að spreyta mig á hátalarakerfinu þá. Ég þarf aðeins að dusta rykið af skólaþýskunni.“

Eggert er sammála því að stökkið frá sveittri fótboltatreyju í flugfreyjubúning sé stórt en að starfið feli í sér mikið meira en bara kaffi-uppáhellingar.

„Auðvitað snýst þetta mikið um að vera notalegur, almennilegur og þjónusta fólk en þetta er fyrst og fremst öryggisstarf. Maður þurfti að taka á honum stóra sínum til að komast í gegnum námskeiðið, sem var mjög krefjandi. Margar reglur og próf sem maður þarf að ná. Þegar ég í framtíðinni get sett á mig flugmannahúfuna mun flugliðareynslan skila sér vel.“

Eggert lagði takkaskóna á hilluna sumarið 2007 eftir slæm meiðsli í hné. „Þau meiðsli gerðu það að að verkum að ég tók stökkið út til Flórída í flugmannsnám. Hugurinn lítur þó hýru auga til fótboltans en skrokkurinn leyfir það ekki. „Ég byrjaði að æfa með FH um áramótin og planið var að vera með í sumar en ég er búinn að vera slæmur í bakinu og varð því að hætta við. Nú flýg ég bara heimshorna á milli, gef kaffi og fæ góðan frítíma með fjölskyldunni. Ég sætti mig alveg við það hlutskipti.“

alfrun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.