Fótbolti

Dani Alves með nýtt samningstilboð á borðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dani Alves.
Dani Alves. Mynd/Nordic Photos/Getty

Barcelona hefur boðið brasilíska landsliðsmanninum Dani Alves nýjan samning sem myndi halda leikmanninum hjá Katalóníu-félaginu til ársins 2015. Núverandi samningur Dani Alves rennur út í júní 2012 en hann hefur einu sinni hafnað því að framlengja samning sinn við félagið.

Dani Alves var ekki sáttur við samninginn sem Joan Laporta fyrrum forseti Barcelona, bauð honum á sínum tíma en nýja tilboðið frá núverandi forseta, Sandro Rossell, er mun betra en það sem Alves ýtti út af borðinu.

Dani Alves kom til Barcelona frá Sevilla árið 2008 en hann er 27 ára gamall og á að baki 41 landsleik fyrir Brasilíu. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, lét hafa það eftir sér á dögunum að Alves væri lykilmaður í leikkerfi liðsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×