Fótbolti

Börsungar án Iniesta næstu vikur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Andres Iniesta.
Andres Iniesta.

Spænski miðjumaðurinn Andres Iniesta hjá Barcelona er meiddur og leikur ekki næsta mánuðinn. Þetta er áfall fyrir Börsunga sem hafa þriggja stiga forystu á Real Madrid í spænsku deildinni.

Barcelona á sjö leiki eftir í deildinni og ljóst að Iniesta mun missa af mörgum mikilvægum leikjum.

Hann verður þó orðinn klár þegar heimsmeistaramótið í fótbolta hefst en Spánverjar mæta Sviss þann 16. júní í fyrsta leik sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×