Körfubolti

Stackhouse genginn í raðir Miami Heat

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jerry Stackhouse.
Jerry Stackhouse.

Ofurlið Miami Heat er ekki hætt að styrkja sig fyrir átök vetrarins. Nú hefur liðið samið við Jerry Stackhouse sem verður 36 ára í næsta mánuði.

stackhouse var með 8.5 stig að meðaltali í 42 leikjum fyrir Milwaukee Bucks á síðustu leiktíð.

"Þetta er mjög spennandi tími á mínum ferli og ég er tilbúinn að keppa með þeim bestu," sagði Stackhouse sem hefur aldrei unnið NBA-titil á löngum ferli.

Þá er það einnig að frétta af Miami Heat að Dwyane Wade er byrjaður að æfa með liðinu á nýjan leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×