Boston og Cleveland töpuðu óvænt - Lakers á toppinn 5. janúar 2009 09:30 Wilson Chandler setti persónulegt met með 31 stigi gegn Boston AP
Óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í nótt þegar New York lagði Boston 100-88 á heimavelli sínum. Á sama tíma vann Lakers sigur á Portland 100-86 á heimavelli og hefur nú besta árangurinn í deildinni. Wilson Chandler skoraði 31 stig fyrir New York í sigrinum á Boston og Paul Pierce var með 31 fyrir meistarana, en þetta var í fyrsta sinn síðan 2005 sem New York vinnur leik liðanna í Madison Square Garden. Boston hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum og missti toppsæti deildarinnar í hendur erkifjenda sinna í LA Lakers í nótt. Lakers vann Portland sem fyrr segir 100-86 með 26 stigum frá Kobe Bryant, en LaMarcus Aldridge skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst fyrir Portland, sem lék án síns besta manns Brandon Roy. Cleveland mátti sætta sig við tap fyrir arfaslöku liði Washington 80-77. LeBron James skoraði 30 stig og gaf 10 stoðsendingar hjá Cleveland en Antawn Jamison skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir Washington. Toronto lagði Orlando 108-102 þrátt fyrir að Dwight Howard skoraði 39 stig fyrir Orlando. Anthony Parker skoraði 26 stig fyrir Toronto. Detroit vann sjöunda leikinn í röð með naumum útisigri á LA Clippers 88-87. Rodney Stuckey skoraði 34 stig fyrir Detroit en Eric Gordon 31 fyrir heimamenn. Loks vann Memphis langþráðan sigur á Dallas 102-82, en Memphis hafði tapað 13 leikjum í röð fyrir Dallas. Staðan í deildinni
NBA Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Enski boltinn Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Íslenski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Sjá meira