Fótbolti

Arnór: Eiður fer hvergi

NordicPhotos/GettyImages

Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, staðfestir í samtali við Sky í dag að ekkert sé til í fréttum á Englandi sem orðuðu Eið við Blackburn í morgun.

"Það hefur enginn verið í sambandi við okkur frá Blackburn. Eiður er ánægður hjá Barcelona og er staðráðinn í að vinna titla með félaginu á leiktíðinni. Eiði er reglulega sýndur áhugi, en ég hef ekki heyrt neitt frá Blackburn. Ég á ekki von á að nokkuð gerist í janúar, því Barcelona vill halda honum og hann vill heldur ekki fara," var haft eftir Arnóri á Sky.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×