Fótbolti

Real ætlar að reyna við Benzema

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Karim Benzema.
Karim Benzema. Nordic Photos/Getty Images

Real Madrid er búið að setja sig í samband við Lyon með hugsanleg kaup á franska framherjanum, Karim Benzema, í huga.

Real og Man. Utd eru bæði afar áhugasöm um að kaupa framherjann öfluga en Lyon og framherjinn hafa bæði sagt að hann muni leika áfram í Frakklandi næsta vetur.

Lyon staðfesti í gær að sú staða væri óbreytt en viðurkenndi að Real Madrid væri búið að hafa samband.

Real segist enn eiga nóg eftir í veskinu og ef Real kemur með stórt tilboð er aldrei að vita hvað forráðamenn Lyon gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×