Fótbolti

Atletico Madrid tryggði sér Meistaradeildarsæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Forlan varð markakóngur spænsku deildarinnar.
Diego Forlan varð markakóngur spænsku deildarinnar. Mynd/AFP

Atletico Madrid tryggði sér í kvöld Meistaradeildarsæti á næsta tímabili þegar liðið vann 3-0 sigur á Almeria á Vicente Calderon leikvanginum í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar.

Atletico þurfti aðeins eitt stig til þess að tryggja sér fjórða sætið í deildinni en Sergio "Kun" Aguero, Raul Garcia og Diego Forlan tryggðu liðinu öruggan 3-0 sigur.

Diego Forlan varð markakóngur spænsku deildarinnar á þessu tímabili en Úrúgvæ-maðurinn skoraði alls 32 mörk í spænsku deildinni eða tveimur mörkum meira en Samuel Eto'o sem kom næstur. David Villa skoraði tvö mörk í kvöld og endaði með 28 mörk.

Villarreal vann 3-2 sigur á Real Mallorca en varð að sætta sig við fimmta sætið og að keppa í Evrópudeildinni á næsta ári. Valencia spilar einnig í Evrópudeildinni eftir 2-0 sigur á Athletic Bilbao en Deportivo La Coruna missti af Evrópusætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×