Körfubolti

Þristur í hverjum leik í tíu ár

Jose Calderon og félagar í Toronto eru miklar skyttur
Jose Calderon og félagar í Toronto eru miklar skyttur Nordic Photos / Getty Images

NBA lið Toronto Raptors setti met í síðustu viku þegar Jose Calderon skoraði þriggja stiga körfu í leik liðsins gegn Minnesota Timberwolves.

Þetta var 837. leikurinn í röð sem Toronto skorar þriggja stiga körfu, sem er NBA met.

Þessi mikla rispa byrjaði einmitt með þriggja stiga körfu Vince Carter gegn Minnesota í febrúar árið 1999 og því hefur liðið skorað þrist í hverjum einasta leik í tíu ár.

Lið Dallas Mavericks er ekki langt á eftir Toronto hvað þetta snertir, því Dallas hefur skorað eina eða fleiri þriggja stiga körfur í síðustu 830 leikjum sínum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×