Körfubolti

Ekki spilað í Stykkishólmi í kvöld vegna veðurs

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Telma Björk Fjalarsdóttir, fyrirliði Hauka, fær nú meiri tíma til þess að jafna sig á ökklameiðslunum.
Telma Björk Fjalarsdóttir, fyrirliði Hauka, fær nú meiri tíma til þess að jafna sig á ökklameiðslunum. Mynd/Stefán
Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að fresta leik Snæfells og Hauka í Iceland Express deild kvenna vegna slæmrar veðurspár fyrir kvöldið en það er spáð stormi norðvestan- og vestanlands fram á nótt.

Leikurinn fer ekki fram fyrr en eftir viku þar sem íþróttahúsið í Stykkishólmi er upptekið á morgun fyrir karlaleik Snæfells og Njarðvíkur í Iceland Expressdeildnni og að Haukakonur eiga að keppa í Subwaybikarnum á móti Val á laugardag.

Nýr leiktími leiks Snæfells og Hauka er því miðvikudaginn 9.desember klukkan 19:15.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×