Körfubolti

Miami hengir upp treyju Hardaway

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hardaway fylgist með er treyjan var hífð upp í rjáfur.
Hardaway fylgist með er treyjan var hífð upp í rjáfur.

Það var mikið um dýrðir á heimavelli Miami Heat í gær þegar treyja númer 10 með nafni Tim Hardaway var hífð upp í rjáfur af virðingu við leikmanninn sem gaf félaginu mikið.

Um 50 ættingjar og vinir fylgdu Hardaway á athöfnina. Þar á meðal voru hin tvö hjólin í „Run TMC-tríóinu" - Chris Mullin og Mitch Ritchmond.

Hardaway þakkaði öllum fyrir sig og var auðmjúkur í ræðu sinni. Hann faðmaði síðan nánast alla í húsinu og þar á meðal Joe Crawford dómara sem þótti spaugilegt í ljósi þess hversu mikið Hardaway elskaði að rífast við dómara.

Aðeins þrír leikmenn léku með númerið 10 áður en Hardaway kom til Miami. Hann hætti árið 2001 og síðan þá hefur enginn þorað í númerið sem verður ekki notað aftur hjá félaginu.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×