Fótbolti

Ronaldo búinn að opna markareikninginn fyrir Real

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo er búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Real.
Cristiano Ronaldo er búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Real. Mynd/AFP

Portúgalinn Cristiano Ronaldo skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid í kvöld eftir að hann kom til liðsins frá Manchester United fyrir metupphæð.

Ronaldo skoraði úr vítaspyrnu í 4-2 sigri Real Madrid á liði frá Ekvador í æfingamóti sem kallast Friðarbikarinn. Ronaldo fiskaði vítið sjálfur en mark hans kom á 48. mínútu leiksins.

Christoph Metzelder, Esteban Granero og Alvaro Negredo skoruðu hin mörk Real Madrid í leiknum en með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik Friðarbikarsins á móti Juventus á föstudaginn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×