Viðskipti innlent

Century Aluminum lækkaði mest

Úr álverinu á Grundartanga.
Úr álverinu á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 3,16 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Marel Food Systems, sem lækkaði um 1,66 prósent, í Eimskipi, sem lækkaði um 0,77 prósent og Össur, sem fór niður um 0,21 prósent.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa í Straumi um 1,65 prósent, Færeyjabanka um 0,89 prósent og Icelandair Group um 0,3 prósent.

Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,35 prósent og endaði í 315 stigum. Sú nýja (OMXI6) lækkaði um 0,17 prósent og endaði í 861,9 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×