Fótbolti

Eyjólfur skoraði í öðrum leiknum í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eyjólfur Héðinsson
Eyjólfur Héðinsson Mynd/Heimasíða sænska knattspyrnusambandsins

Eyjólfur Héðinsson skoraði eitt marka GAIS sem vann 4-0 sigur á Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Eyjólfur var í byrjunarliði GAIS og lék allan leikinn. Markið skoraði hann á 47. mínútu og kom þar með sínum mönnum í 2-0 í leiknum.

Þetta var annar leikur GAIS í röð þar sem Eyjólfur nær að skora og það þriðja í síðustu fjórum leikjum.

Hvorki Guðjón Baldvinsson né Hallgrímur Jónasson voru í leikmannahópi GAIS í kvöld.

Þetta var mikilvægur sigur hjá GAIS en með honum færðist liðið fjær fallsvæði deildarinnar. Liðið er í ellefta sæti deildarinnar og er nú sjö stigum frá fallsæti. Gefle er í áttunda sætinu.

Baráttan á toppnum er spennandi en aðeins fjögur stig skilja að efstu fjögur liðin - AIK, Gautabork, Kalmar og Elfsborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×