Fótbolti

Nani: Við erum með bestu leikmenn í heimi

Nordic Photos/Getty Images

Vængmaðurinn Nani hjá Manchester United er handviss um að liðið hafi það sem til þarf til að leggja Porto á Estadio Dragao í Meistaradeildinni í kvöld.

United þarf helst að vinna leikinn eftir að hafa gert 2-2 jafntefli á heimavelli í fyrri leiknum og Nani er ekki hræddur við verkefnið.

"Af hverju er ég bjartsýnn? Af því við erum einfaldlega með bestu leikmenn í heimi," sagði Nani í samtali við Sun.

"Við höfum sjálfstraust til að vinna hvaða lið sem er. Við vitum að Porto er gott lið en þeir eiga erfitt verkefni fyrir höndum. Þeir eru á heimavelli og það er meiri pressa á liðum sem spila heima að sækja. Við ætlum að vinna þennan leik og vitum að við getum það," sagði Nani.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×