Körfubolti

Fjársterkir aðilar bjarga sigurhátíð Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe og Pau fá sína sigurhátíð.
Kobe og Pau fá sína sigurhátíð. Nordic Photos/Getty Images

Borgarstjóri Los Angeles, Antonio Villaraigosa, hefur staðfest að það verði skrúðganga í borginni þar sem borgarbúar geti hyllt nýkrýnda NBA-meistara, LA Lakers.

Upphaflega stóð ekki til að halda slíka hátíð enda er hún sögð kosta um eina milljón dollara.

Miðað við efnahagsástandið og atvinnuleysið í borginni þótti ekki rétt að eyða slíkum peningum í skrúðgönguna.

Borgarstjórinn segist aftur á móti hafa fengið 850 þúsund dollara frá fjársterkum aðilum og því sé ekkert sem geti komið í veg fyrir að Lakers fái þá hyllingu sem borgarstjórinn telur liðið eiga skilið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×