Körfubolti

Keflavík kom fram hefndum

Birna Valgarðsdóttir var atkvæðamest í Keflavík í dag
Birna Valgarðsdóttir var atkvæðamest í Keflavík í dag Mynd/Vilhelm

Keflavík lagði KR 79-70 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna í körfubolta og hefndi þar með fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi.

Birna Valgarðsdóttir skoraði 28 stig og hirti 9 fráköst fyrir Keflavík og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 22 stig og hirti 8 fráköst.

Hildur Sigurðardóttir skoraði 17 stig og hirti 11 fráköst fyrir KR í leiknum, Guðrún Þorsteinsdóttir skoraði 15 stig og hirti 11 fráköst og Margrét Kara Sturludóttir skoraði 12 stig og hirti 15 fráköst.

Keflavík er í öðru sæti A-riðilsins með 28 stig, sex stigum minna en topplið Hauka, en KR er í þriðja sætinu með 20 stig. Hamar hefur 18 stig í fjórða sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×