Sport

Nadal í stuði

NordicPhotos/GettyImages

Rafael Nadal, stigahæsti tennisleikari heims, vann auðveldan sigur á Belganum Christophe Rochus í fyrsta leik sínum á opna ástralska meistaramótinu í dag.

Nadal var í miklu stuði og vann leikinn 6-0, 6-2 og 6-2. Hann setti tóninn með því að vinna fyrsta settið á aðeins 19 minútum og eftir það var sigur hans aldrei í hættu. Belginn sótti í sig veðrið þegar á leið, en Spánverjinn kláraði dæmið á klukkutima og 17 mínútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×