Fótbolti

Næsta mark er númer 100 í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen er sjötti markahæsti leikmaður Barcelona á tímabilinu.
Eiður Smári Guðjohnsen er sjötti markahæsti leikmaður Barcelona á tímabilinu. Nordic Photos / AFP

Sannkölluð stórsókn hefur staðið yfir hjá Eiði Smára Guðjohnsen og félögum í Barcelona á þessu tímabili enda vantar liðið aðeins eitt mark til að skora hundrað mörk á tímabilinu.

Barcelona hefur skorað 99 mörk í 36 leikjum eða 2,75 að meðaltali í leik. Liðið hefur skorað 65 mörk í 21 deildarleik (3,1) og 22 mörk í 8 leikjum í Meistaradeildinni (2,75).

Eiður Smári Guðjohnsen, sem lék sinn 100. leik fyrir Barcelona í vikunni, hefur skorað fjögur af þessum 99 mörkum en markahæstir eru Lionel Messi (22 mörk), Samuel Eto'o (22) og Thierry Henry (15).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×