Enski boltinn

Faubert lánaður til Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Julien Faubert í leik með West Ham.
Julien Faubert í leik með West Ham. Nordic Photos / Getty Images

Íslendingafélagið West Ham hefur gengið frá lánssamningi fyrir Julien Faubert til spænska stórliðsins Real Madrid.

Fyrr í dag var greint frá því að félögin væru sátt um greiðslu, eina og hálfa milljón punda, fyrir lánssamninginn en Real getur síðan keypt Faubert í lok tímabilsins.

Nú síðdegis stóðst svo Faubert læknisskoðun hjá Real Madrid og hefur verið gengið frá félagaskiptunum.

Faubert kom til West Ham frá Bordeaux fyrir 6,1 milljón punda árið 2007 en þær fregnir að hann sé nú kominn til Real Madrid hafa komið flestum sparkspekingum í opna skjöldu.

Real Madrid hefur þó verið að leita að miðvallarleikmanni í mánuðinum og meðal annars verið orðað við Jermaine Pennant og Antonio Valencia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×