Körfubolti

NBA; Kobe brákaði fingur og Shaq fékk putta í augað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Los Angeles Lakers vann sinn ellefta leik í röð í nótt þegar Úlfarnir frá Minnesota litu við í Staples höllinni.

Kobe Bryant varð fyrir meiðslum í leiknum. Hann brákaði fingur en snéri aftur og spilaði vel.

Shaquille O´Neal sá lítið af leik Cleveland og Portland því hann fékk putta í augað og varð að fara af velli. Hann ferðaðist með liðinu eftir leikinn og ætti að vera klár í næsta slag.

Já, og svo tapaði New Jersey Nets.

Úrslit næturinnar:

Indiana-NJ Nets  107-91

Philadelphia-Houston  91-96

Toronto-Atlanta  89-111

Miami-Dallas  93-106

Chicago-Golden State  96-91

Cleveland-Portland  104-99

Memphis-Oklahoma  94-102

New Orleans-NY Knicks  96-113

San Antonio-Charlotte  104-85

LA Lakers-Minnesota  104-92

Phoenix-Orlando  106-103

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×