Körfubolti

KR í undanúrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helga Einarsdóttir og félagar í KR eru komin í undanúrslit úrslitakeppninnar eftir sigur á Grindavík.
Helga Einarsdóttir og félagar í KR eru komin í undanúrslit úrslitakeppninnar eftir sigur á Grindavík. Mynd/Anton
KR tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna með sigri á Grindavík, 77-57.

Þetta var oddaviðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en það var aldrei spurning í leiknum hvaða lið myndi bera sigur úr býtum.

KR-ingar höfðu yfirhöndina strax frá upphafi leiksins og voru með ellefu stiga forystu í hálfleik, 34-23. Sá munur jókst aðeins í síðari hálfleik.

Hildur Sigurðardóttir skoraði fimmtán stig fyrir KR og tók þar að auki tólf fráköst. Helga Einarsdóttir kom næst með fjórtán stig.

Hjá Grindavík var Jovana Stefánsdóttir stigahæst með tíu stig. Íris Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir Grindvíkinga í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×