Fótbolti

Mourinho sannfærður um að Inter vinni Barcelona

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn málglaði Jose Mourinho hjá Inter er alls ekkert smeykur fyrir heimsókn Meistataradeilarmeistaranna í Barcelona í fyrsta leik riðlakeppninnar á miðvikudag.

Mourinho telur að leikmannahópur sé nú mun sterkari eftir eyðslu sumarsins á meðan Barcelona hafi ekki styrkt leikmannahóp sinn neitt af ráði og skýtur þar með létt á framherjann Zlatan Ibrahimovic sem gekk í raðir Barcelona frá Inter í sumar.

„Ég get ekki séð að Barcelona standi okkur neitt framar þegar leikurinn hefst. Þeir verða með ellefu leikmenn inni á vellinum eins og við og staðan verður 0-0 þegar leikurinn hefst.

Barcelona hefur ekki breytt leikmannahópi eða leikskipulagi sínu mikið síðustu fjögur til fimm ár en ég tel að við séum að bæta okkar leik mikið og nú komnir með fjóra til fimm nýja leikmenn sem eru að falla vel inn í hópinn. Ég er því sannfærður um að við getum unnið leikinn," sagði Mourinho í samtali vði Sky Italia.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×