Fótbolti

40 þúsund evrur fyrir þrjá bjóra

AFP

Barcelona hefur verið sektað um 40,000 evrur af spænska knattspyrnusambandinu eftir að þremur bjórdósum var kastað inn á Nou Camp í leik liðsins gegn Mallorca í síðasta mánuði.

Spænska blaðið Marca greinir frá þessu og segir að Barca fái þarna hæstu mögulegu sekt - hliðstæða þeirri sem Real Madrid þurfti að greiða þegar stuðningsmaður kastaði sessu inn á völlinn í leik liðsins gegn Mallorca.

Spænska sambandið er farið að taka harðar á ólátum á völlum þar í landi og er til að mynda farið að setja áhorfendur í sex mánaða bann fyrir að drekka áfengi í stúkunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×