Viðskipti innlent

Gengi bréfa Össurar féll um rúm átta prósent

Gervifótur frá stoðtækjaframleiðandanum Össuri.
Gervifótur frá stoðtækjaframleiðandanum Össuri. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hækkaði um 7,08 prósent í Kauphöllinni í dag. Bréf Century Aluminum hækkaði á sama tíma um 1,45 prósent.

Þá féll gengi bréfa Össurar um 8,15 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,12 prósent og endaði í 214,18 stigum. Nýja vísitalan lækkaði um 0,6 prósent og endaði í 634 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×