Körfubolti

1-0 fyrir Haukastúlkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Slavica Dimovska var sterk í Haukaliðinu í kvöld.
Slavica Dimovska var sterk í Haukaliðinu í kvöld. Mynd/Vilhelm

Haukar hafa tekið forystuna í undanúrslitaeinvíginu gegn Hamri í Iceland Express-deild kvenna. Haukar unnu fyrsta leikinn í kvöld, 66-61.

Monika Knight var stigahæst hjá Haukum með 19 stig og Slavica Dimovska kom næst með 13.

LaKiste Barkus var allt í öllu hjá Hamri með 28 stig.

Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslit. Keflavik og KR mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×