Körfubolti

Þetta var mjög stór sigur fyrir okkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lakiste Barkus var með 13 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar í gær.
Lakiste Barkus var með 13 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar í gær. Mynd/Anton

Hamarskonur galopnuðu undanúrslitaeinvígi sitt á móti deildarmeisturum Hauka í Iceland Express deild kvenna í körfubolta með öruggum 53-41 sigri í Hveragerði í gær. LaKiste Barkus lék vel fyrir Hamar og stjórnaði sóknarleik liðsins með glæsibrag en staðan í einvíginu er nú 1-1.

„Þetta var mjög stór sigur fyrir okkur og við vissum að við yrðum að vinna á heimavelli ef við ætluðum að eiga möguleika á að vinna einvígið. Það var því afar mikilvægt að vinna þennan leik," sagði Barkus eftir leikinn.

Hamar vann Val sannfræandi 2-0 í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en tapaði fyrsta leiknum fyrir Haukum með fimm stigum, 61-66, á Ásvöllum á þriðjudaginn.

„Stelpurnar komu sterkar inn í seinni hálfleikinn. Þær komu sem sömu orku og kraft og þær komu með inn í Valsleikina," sagði Barkus og bætti við:

„Við vorum með miklu meiri einbeitingu innan okkar liðs og vorum miklu þolinmóðari í sókninni. Okkur tókst líka að þjappa okkur saman og spila góða vörn," sagði LaKiste Barkus.

Hamar var 23-20 yfir í hálfleik en virtist vera að hiksta aðeins í upphafi þess seinni þegar liðið skoraði ekki fyrstu fjórar mínútur leikhlutans og fjögur stig Hauka í röð komu þeim yfir í 23-24. Hamarsliðið svaraði þá með 15-2 spretti og tók frumkvæðið í leiknum.

„Ég var sérstaklega ánægð með Írisi og fannst hún spila mjög vel. Hún var mjög ákveðin í bæði sókn og vörn og hjálpaði okkur mikið með því," sagði LaKiste en Íris skoraði öll tíu stigin sín í seinni hálfleiknum.

Barkus meiddi sig í lok leiksins og það var ekki falleg sjón fyrir Ara Gunnarsson þjálfara liðsins. Hún sjálf hefur þó engar áhyggjur.

„Ég snéri aðeins á mér ökklann en ég verð í lagi," sagði Barkus greinilega ákveðin að ná í þá tvo sigra til viðbótar sem vantar til að Hamarsliðið spili til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×