Körfubolti

Garnett tryggði Boston sigur - Ótrúleg tilþrif Kobe (myndband)

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Garnett fagnar sigurkörfu sinni í nótt.
Kevin Garnett fagnar sigurkörfu sinni í nótt. Mynd/AP
Flautukarfa Kevin Garnett í lok framlengingar í leik Boston og New York í NBA-deildinni í nótt tryggði fyrrnefnda liðinu sigur í leiknum, 107-105.

Garnett hafði reyndar ekki átt neitt sérstakan dag og hafði aðeins hitt úr fjórum skotum af fimmtán utan af vellinum þegar kom að skotinu mikilvæga.

Paul Pierce var allt í öllu í sóknarleik Boston og skoraði öll stig liðsins í framlengingunni nema síðustu körfuna.

Pierce átti þó stoðsendinguna í síðustu sókninni. Hann dró með sér tvo varnarmenn New York sem gerði það að verkum að Garnett var óvaldaður og tryggði sínum mönnum sigurinn.

Pierce skoraði 33 stig í leiknum en hvorki Garnett né Ray Allen náðu sér á strik. Ray Allen var með fjórtán stig, tíu stoðsendingar og níu fráköst, Allen þrettán og Garnett tíu.

Hjá New York var Al Harrington með 30 stig og David Lee 22 stig og fimmtán fráköst.

Orlando vann Toronto, 104-96. Vince Carter var með 24 stig og Dwight Howard sautján stig og tólf fráköst fyrir Orlando.

Miami vann New Orleans, þar sem Dwyane Wade fór á kostum og skoraði 31 stig. Udonis Haslem skoraði þó mikilvægustu körfu leiksins fimmtán sekúndum fyrir leikslok.

Charlotte vann Indiana, 104-88. Nazr Mohammed skoraði átján stig og Boris Diaw sautján fyrir Charlotte sem batt í nótt enda á sjö leikja taphrinu.

Phoenix vann Detroit, 117-91. Amare Stoudemire skoraði 31 stig og Steve Nash 20 fyrir Phoenix þó svo að hann hafi ekkert komið við sögu í fjórða leikhluta. Þetta var fimmta tap Detroit í röð.

LA Lakers vann Oklahoma City, 101-85. Kobe Bryant skoraði 26 stig, þar á meðal ótrúlega körfu fyrir aftan spjaldið, eins og sjá má hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×