Íslenski boltinn

Aðeins fimmtán leikhæfir leikmenn hjá FH í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Viðar Björnsson meiddist í fyrri leiknum á móti Aktobe.
Atli Viðar Björnsson meiddist í fyrri leiknum á móti Aktobe. Mynd/Valli

FH-ingar mæta á eftir Aktobe í seinni leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma. FH-liðið hefur kynnst miklu mótlæti í aðdraganda leiksins því það er ekki nóg með að hafa tapað fyrri leiknum 0-4 á heimavelli þá var liðið án fimm leikmanna í þetta langa ferðalag.

Sjötti leikmaðurinn bættist síðan í hópinn í dag þegar Pétur Viðarssson meiddist á nára. Þetta kom fram í frétt á www.fhingar.net. FH-ingar ættu hinsvegar að sleppa við allt matarvesen því liðið tók Ingvar á salatbarnum með sér úti til þess að elda auk þess að með í för eru einnig allt hráefni og vatn.

Pétur bætist þá í hóp þeirra Hjartar Loga Valgarðssonar, Freys Bjarnasonar, Atla Viðars Björnssonar, Guðmundar Sævarssonar sem eru líka meiddir og þá er Viktor Örn Guðmundsson í leikbanni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×