Sport

Federer og Djokovic áfram

NordicPhotos/GettyImages

Roger Federer, næststigahæstir tennisleikari heims og Novak Djokovic, sem á titil að verja í keppninni, unnu sigra í fyrstu umferð opna ástralska meistararmótsins í dag.

Federer bar sigurorð af Ítalanum Andreas Seppi 6-1, 7-6 (7-4) og 7-5. Hann var sannfærandi í fyrsta settinu sem hann kláraði á aðeins 24 mínútum, en náði sér aldrei almennilega á strik eftir það þó hann hefði sigurinn að lokum.

Svisslendingurinn hefur þrisvar unnið sigur á mótinu á ferlinum og stefnir á sigur á fjórtanda risamóti sínu á ferlinum, sem yrði metjöfnun.

Djokovic hóf titilvörnina á 6-2, 6-3 og 7-5 sigri á Andrea Stoppini frá Ítalíu.

Andy Roddick, sem þrisvar hefur náð í undanúrslit mótsins, vann Björn Rehnquist örugglega 6-0, 6-2 og 6-2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×