Körfubolti

Elton Brand úr leik hjá Philadelphia

Elton Brand spilar ekki meira með Philadelphia í vetur
Elton Brand spilar ekki meira með Philadelphia í vetur AP

Kraftframherjinn Elton Brand hjá Philadelphia 76ers í NBA deildinni þarf að fara í uppskurð vegna axlarmeiðsla og kemur ekki meira við sögu með liði sínu á leiktíðinni.

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir lið Philadelphia og ekki síður fyrir leikmanninn sjálfan, en hann spilaði aðeins átta leiki á síðustu leiktíð vegna langvarandi meiðsla.

Brand var fenginn til Philadelphia í sumar sem leið og skrifaði undir fimm ára samning upp á um 80 milljónir dollara.

Miklar vonir voru bundnar við komu þessa fyrrverandi stjörnuleikmanns hjá Philadelphia, en hann hefur enn ekki náð að smella almennilega inn í leik liðsins.

Þar höfðu erfið meiðsli Brand mikið að segja, en hann hefur aðeins spilað 29 leiki með liðinu í vetur og hefur aðeins komið lítið við sögu í mörgum þeirra.

Þessi sterki leikmaður hefur aðeins skilað 13,8 stigum og 8,8 fráköstum að meðaltali í leik í vetur.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×