Fótbolti

Börsungar segja Puyol ekki á förum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Puyol með Evrópubikarinn.
Puyol með Evrópubikarinn.

Evrópumeistarar Barcelona hafa blásið á þær sögusagnir að varnarmaðurinn Carles Puyol sé á leið til Manchester City. Enska liðið er í leit að varnarmanni og hefur gert tilboð í John Terry, fyrirliða Chelsea.

Börsungar segja hinsvegar að engin tilboð hafi borist í Puyol sem hefur allan sinn feril leikið með Katalóníuliðinu. Þá segja þeir að það sé alls ekki áætlunin að selja leikmanninn í sumar.

Með Barcelona hefur Puyol þrívegis orðið Spánarmeistari, tvívegis unnið Meistaradeildina og spænska Konungsbikarinn einu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×