Fótbolti

Faubert gleymdi að mæta á æfingu

Nordic Photos/Getty Images

Franski miðvallarleikmaðurinn Julien Faubert hjá Real Madrid gæti átt von á refsingu frá félaginu eftir að hafa gleymt að mæta á æfingu í gær.

Spænskir blaðamenn veittu því athygli að fyrrum West Ham maðurinn var hvergi sjáanlegur á æfingu og spurðu Juande Ramos þjálfara út í fjarveru leikmannsins.

"Drengurinn ruglaðist aðeins, það var allt og sumt. Hann veit að það eru agareglur hjá félaginu og hann mun hlýða þeim. Þetta er ekkert vandamál," sagði Ramos á blaðamannafundi í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×