Körfubolti

Grindvíkingar treysta á ungan heimamann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lilja Ósk Sigmarsdóttir og félagar í Grindavík eru komnar með nýjan þjálfara.
Lilja Ósk Sigmarsdóttir og félagar í Grindavík eru komnar með nýjan þjálfara. Mynd/Anton

Grindvíkingar hafa fundið sér þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna en á heimasíðu félagsins kemur fram að Jóhann Þór Ólafsson muni þjálfa kvennaliðið næsta vetur.

Jóhann Þór verður 26 ára gamall í sumar en í vetur var hann aðstoðarmaður hjá bæði Friðriki Ragnarssyni hjá karlaliðinu og Pétri Guðmundssyni hjá kvennaliðinu.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Jóhann þjálfar í meistaraflokki og verður hann að öllum líkundum yngsti þjálfari kvennadeildarinnar næsta vetur.

Jóhann er eldri bróðir Þorleifs Ólafsson, leikmanns Grindavíkurliðsins og systir hans, Sigríður Anna, lék með kvennaliðinu í mörg ár.

Jóhann Þór Ólafsson var efnilegur leikmaður en lenti í mjög erfiðum hnémeiðslum sem þýddu að hann var að leggja körfuboltaskónna á hilluna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×