Fótbolti

Ramos stoltur af árangri sínum með Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Juande Ramos.
Juande Ramos. Nordic Photos/Getty Images

Juande Ramos segir að ef framtíð sín hjá félaginu velti á því hvort hann hafi tapað einum leik þá vilji hann einfaldlega ekki vera þar áfram.

Það búast margir við því að honum verði sparkað í sumar þar sem von sé á nýjum forseta. Ramos er þó afar stoltur af árangri sínum með liðið síðustu sex mánuði.

„Það lítur út fyrir að þar sem ég hafi tapað tveimur leikjum með liðið þá sé ég ekki hæfur til þess að stýra því. Ég vil ekki þjálfa Real Madrid ef það þarf aðeins einn leik til þess að reka mann," sagði Ramos.

„Ég veit hvað ég hef gert og til hvers var ætlast af mér. Það hefur gengið eftir og ég er afar stoltur af árangri mínum með félagið. Við töpuðum ekki leik í 18 vikur. Unnum 17 leiki og gerðum eitt jafntefli. Ímynd liðsins getur ekki hrunið þar sem við töpuðum tveimur leikjum," sagði Ramos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×