Fótbolti

Man. City með tilboð í Eto´o

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Samuel Eto´o.
Samuel Eto´o.

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur greint frá því að Man. City sé búið að gera Samuel Eto´o risatilboð.

Eto´o á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona og er fastlega búist við því að hann muni yfirgefa Nou Camp í sumar.

Laporta segir að Eto´o yrði launahæsti leikmaður heims ef hann tekur tilboði City. Laporta segist vilja halda Eto´o en segir að tilboðið sé líklega of gott til að hafna því.

Laporta staðfesti enn fremur að Barcelona myndi kaupa nýjan framherja ef Eto´o færi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×