Enn tapar Boston 7. janúar 2009 09:37 Kendrick Perkins og Kevin Garnett hjá Boston kljást hér við Emeka Okafor hjá Charlotte í leik liðanna í nótt AP
Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Boston tapaði enn einum leiknum þegar það lá fyrir Charlotte Bobcats eftir framlengdan leik 114-106. Þetta var fimmta tap meistara Boston í sjö leikjum eftir að liðið vann nítján leiki í röð. Raymond Felton skoraði 25 stig fyrir Charlotte og nýliðinn DJ Augustin skoraði 11 af 20 stigum sínum í framlengingunni. Paul Pierce skoraði 28 stig fyrir Boston og Ray Allen 20. New Orleans vann góðan útisigur á LA Lakers og batt þar með enda á fimmtán leikja sigurgöngu Vesturdeildarmeistararnna á heimavelli. David West skoraði 15 af 40 stigum sínum í fjórða leikhlutanum og skoraði tveimur stigum meira en allt Lakers-liðið í leikhlutanum. Chris Paul skoraði 32 stig og gaf 15 stoðsendingar fyrir New Orleans en Kobe Bryant var bestur hjá Lakers með 39 stig. Orlando lagði Washington 89-80. Hedo Turkoglu skoraði 22 stig fyrir Orlando og Dwight Howard var með 15 stig og 16 fráköst en Caron Butler skoraði 29 fyrir Washington. Philadelphia skellti Houston heima 104-96. Andre Iguodala setti 28 stig fyrir Philadelphia en Luis Scola var með 18 stig og 17 fráköst hjá gestunum. Oklahoma vann aðeins sinn fimmta sigur í 35 leikjum í vetur þegar það lagði New York 107-99 á heimavelli. Kevin Durant skoraði 27 stig fyrir Oklahoma en Al Harrington 21 fyrir New York. Minnesota lagði Memphis 94-87 í botnslag í Vesturdeildinni. Randy Foye skoraði 23 fyrir Minnesota en Hakim Warrick 22 fyrir Memphis. Chicago lagði Sacramento heima 99-94 á heimavelli. Ben Gordon skoraði 24 stig fyrir heimamenn en Kevin Martin 29 stig fyrir gestina. Þá vann Dallas sigur á LA Clippers 107-102 á heimavelli og fékk 34 stig frá Dirk Nowitzki. Eric Gordon skoraði 32 stig fyrir Clippers og Marcus Camby hirti 19 fráköst. Staðan í NBA deildinni
NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira