Körfubolti

Meistarakeppni KKÍ fer fram í DHL-höllinni í dag

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fannar Freyr Helgason hjá Stjörnunni hampar bikarmeistaratitlinum eftir sigur gegn KR.
Fannar Freyr Helgason hjá Stjörnunni hampar bikarmeistaratitlinum eftir sigur gegn KR. Mynd/Vilhelm

Körfuboltavertíðin hefst formlega í dag þegar Meistarakeppni KKÍ fer fram í DHL-höllinni í Vesturbænum þar sem Íslandsmeistarar og bikarmeistarar síðasta tímabils í karla og kvenna flokki eigast við.

Hjá konunum mætast taka Íslandsmeistarar Hauka á móti bikarmeisturum KR en hjá körlunum mætast Íslandsmeistarar KR og bikarmeistarar Stjörnunnar en Stjörnumenn unnu einmitt KR-inga í úrslitaleik bikarsins á síðasta tímabili.

Kvennaleikurinn hefst kl. 16.30 en karlaleikurinn hefst kl. 19.15 en miðaverð á leikina er 1000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 12-16 ára en frítt fyrir börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×