Skoðun

Opið bréf til Katrínar Júlíusdóttur

Stefán Jón Hafstein skrifar
Sæl Kata.

Ég er algjörlega ruglaður. Mér skilst að Samfylkingin styðji 360.000 tonna álver í Helguvík og það með hraði. Helst byrja næsta vor. Svo mikið liggur á að fara þarf með nýja stóriðjulínu til suðvesturs yfir vatnsból Reykvíkinga, sem sýnir að áhættufíklar eru enn við stjórn á Íslandi. Væru vatnsbólin olíulindir myndi engum detta í hug að taka minnstu áhættu með þær. Þessi auðæfi eru ómetanleg og þú ættir að láta kanna ávinninginn af því að fara þarna yfir í samanburði við aðrar leiðir – áður en farið er á skítugum trukkum yfir svæðið. Þar er nú bannað að fara með olíur og önnur efni.

En það var ekki erindið. Ég hef reynt að fá botn í það hvaða orka eigi að fara um þessa línu til álversins. Það virðist enginn vita það. Mörður spurði vin sinn (og þinn) Björgvin Sig. um þetta í dagblaði; ég sá engin svör. Árni Finnsson spurði Jóhönnu um daginn (og margoft áður) og hvergi hefur birst svar. Árni og Mörður eru engir jólasveinar í svona málum, viti þeir ekki svörin er mér vorkunn. Og nú kemur vinkona okkar Þórunn Sveinbjarnar (sem er ekki heldur neinn jólasveinn) og segir: „Það eina sem liggur reyndar ekki alveg fyrir er hvernig eigi að afla orku til stóra álversins en væntanlega finna menn út úr því.“ Væntanlega?

Þú sem iðnaðarráðherra veist örugglega svarið. Því ef þú veist það ekki, þá veit það enginn. Ég er því með nokkrar spurningar sem þú getur svarað lið fyrir lið:

1) Hvaða virkjanir eiga að útvega 360.000 tonna álveri í Helguvík þau megavött sem þarf?

2) Hversu mikið virkjanlegt og nýtanlegt afl (núna) verður þá eftir á SV-horninu fyrir annars konar stóriðju (gagnaver og rafmagn á bíla og fleira)? Frá hvaða virkjunum? (Ég er ekki að tala um tæknilausnir framtíðarinnar.)

3) Samkvæmt fréttaskýringum eru nú 70% af raforku Íslands bundin verðsveiflum á áli. Með Helguvíkurálveri verða 90% af allri raforkusölu á Íslandi tengd áli. Hversu mörg fjöregg telur þú rétt að hafa í einni körfu: 9 af 10? 7 af 10? Færri?

Það er hægt að svara þessu öllu í örfáum orðum. Ég er svo með eina aukaspurningu sem gefur fimm stig en hana færðu þegar ég er búinn að sjá svörin við þessum.

Kveðja heim.

Höfundur er félagi í Samfylkingunni.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×