Körfubolti

Haukar lögðu bikarmeistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Slavica Dimovska skoraði 21 stig fyrir Hauka í kvöld.
Slavica Dimovska skoraði 21 stig fyrir Hauka í kvöld. Mynd/Vilhelm
Haukar unnu í kvöld öruggan ellefu stiga sigur á nýkrýndum bikarmeisturum KR, 83-72. Þar með er ljóst að KR á engan möguleika að ná sér í annað sæti deildarinnar.

Haukar hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og heimavallarréttinn út alla úrslitakeppnina. En þar sem KR tapaði í kvöld og Keflavík vann sinn leik gegn Hamar er ljóst að Keflavík hefur tryggt sér annað sæti A-riðils deildarinnar. KR er þó enn með tveggja stiga forystu á Hamar í þriðja sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

Fljótlega í fyrsta leikhluta var ljóst í hvað stefndi. Haukar fóru að síga fram úr um miðjan leikhlutann er þeir settu niður tvo þrista í röð og juku muninn í ellefu stig, 21-10.

Slavica Dimovska fór einnig mikinn í upphafi leiks fyrir Hauka og skoraði ellefu af fyrstu átján stigum liðsins.

Ekkert gekk í sókninni hjá KR í upphafi beggja leikhluta og skoraði liðið ekki nema tvö stig á fyrstu fjórum mínútum annars leikhluta. Þá náðu Haukar mest 20 stiga forystu, þegar staðan var 34-14.

KR-ingar náðu eftir þetta að rétta sinn hlut örlítið þegar liðið fór að taka fleiri fráköst og spila betri varnarleik en staðan í hálfleik var 44-31, Haukum í vil.

Haukar skoruðu ekkert í upphafi síðari hálfleiks og náði KR að minnka muninn í sex stig með því að skora fyrstu sjö stig leikhlutans. Þá tóku hins vegar Haukar aftur við stjórnartaumunum og skoruðu síðustu sextán stig leikhlutans. Munurinn var þar með orðinn 22 stig.

KR-ingar neituðu þó að gefast upp og reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn í fjórða leikhlutanum. En tíminn vann með Haukum og var sigurinn í raun aldrei í hættu.

Stigahæstar hjá KR:

Hildur Sigurðardóttir 19

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14

Guðrún Ósk Ámundadóttir 12

Stigahæstar hjá Haukum:

Kristrún Sigurjónsdóttir 25 (13 fráköst)

Slavica Dimovska 21

Gangur 1. leikhluta: 0-2, 2-8, 6-10, 10-13, 10-21, 12-25.

Gangur 2. leikhluta: 12-30, 16-34, 21-36, 29-44, 31-44.

Gangur 3. leikhluta: 38-44, 38-60.

Gangur 4. leikhluta: 38-62, 45-62, 51-67, 53-70, 62-75, 67-76, 70-78, 72-83.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×