Matur

Forréttur: nautalund

½ stk Chilli rauður

3 stk Lime, börkur og safi

2 stk Sítróna

½ bolli Sojasósa

1/3 bolli Fiskisósa

1 bolli Demeral sykur

Koriander

Mynta

Pecanhnetur

Rauðlaukur.



Kjötið er létt brúnað af og lokað vel, kjötið er svo látið standa og kólna.

Chilli er skorin mjög smátt niður, lime safi og börkur, sojasósan, fiskisósan, sítrónubörkurinn og safinn og sykurinn er sett í skál og hrært vel saman, gott er að láta sósuna standa áður en hún er bornn fram.

Kjötið er skorið í þunnar sneiðar og raðað á borð, þá er myntu og koriander sett inní ásamt rauðlauk. Smá sósa er sett yfir og kjötið svo lúllað upp og raðað á disk. Sósan er sett yfir, hneturnar eru saxaðar niður og settar yfir kjötið, svo skreytum við með smá chilli og meiri sósu. 

Þessi réttur er einnig góður sem pinnamatur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.