Fótbolti

Ronaldo dreymir um að fá Rooney til Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cristiano Ronaldo hefur ekki gleymt því hversu gott sé að spila með Wayne Rooney og Portúgalann dreymir um að spila með Rooney hjá Real Madrid.

„Hann getur orðið stórstjarna hjá Madrid og hefur allt sem þarf til að verða einn af bestu mönnum spænsku deildarinnar," sagði Ronaldo.

Það gæti reynst þrautin þyngri hjá Madrid að næla í Rooney sem hefur áður sagt að hann vilji ekki spila utan Englands.

Hann vill þess utan skuldbinda sig enn frekar við Man. Utd og er búist við að hann skrifi undir nýjan risasamning á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×